FRÍ sending í nóvember! Sendum allar pantanir hratt og örugglega með Dropp um allt land!

Voksi® Ungbarnaskór

Á lager

Verð 14,990 kr | Afsláttur -14,990 kr (Liquid error (sections/product-template line 228): divided by 0%afsláttur)

/
Hlýir og þægilegir Voksi® ungbarnaskór með 100% ullarfyllingu. Vindheldir og vatnsfráhrindandi og fullkomnir til að halda börnum hlýjum í kerru, burðarpoka eða bílstól. Voksi® ungbarnaskórnir eru hlýir og þægilegir skór fyrir börn sem eru ekki farin að ganga. Þeir koma...
202020101010

Lýsing

Hlýir og þægilegir Voksi® ungbarnaskór með 100% ullarfyllingu.

Vindheldir og vatnsfráhrindandi og fullkomnir til að halda börnum hlýjum í kerru, burðarpoka eða bílstól.

Voksi® ungbarnaskórnir eru hlýir og þægilegir skór fyrir börn sem eru ekki farin að ganga. Þeir koma í tveimur stærðum og henta einstaklega vel í kerru, burðarpoka og bílstól þar sem mikilvægt er að halda litlum fótum hlýjum og vel vörðum.

Skórnir eru framleiddir úr vönduðum og gæðavottuðum efnum. Fyllingin er úr 100% ull sem er náttúrulega hitastillandi og hjálpar til við að viðhalda þægilegu hitastigi á sama tíma og hún leiðir raka frá fótunum. Ytra byrðið er vindhelt og vatnsfráhrindandi með 8000 mm vatnssúlu og BIONIC FINISH® ECO meðhöndlun.

Skórnir sitja vel á fætinum og auðvelt er að klæða barnið í þá með frönskum rennilás. Öll efni eru OEKO TEX® Standard 100, class 1 vottuð og því prófuð með tilliti til skaðlegra efna. Hægt er að samræma litina við Voksi® kerrupoka og vagnhanska.

Helstu eiginleikar

  • Hlýir ungbarnaskór með ullarfyllingu
  • Henta börnum sem eru ekki farin að ganga
  • Auðvelt að fara í og úr með frönskum rennilás
  • Góð öndun í efni
  • Vindhelt og vatnsfráhrindandi
  • Vatnssúla 8000 mm
  • Henta vel fyrir bæði haust og vetur

Efni

  • Ytra efni: 100% nælon
  • Innra efni: 100% pólýester
  • Fylling: 100% ull

Vottanir

  • OEKO TEX® Standard 100, class 1
  • BIONIC FINISH® ECO
  • Responsible Wool Standard, RWS

Þvottaleiðbeiningar

Þvoið á 40°C ullarþvotti með ullarþvottaefni. Má ekki bleikja. Þurrkið í þurrkara á lágum hita með þurrkkúlum þar til skórnir eru alveg þurrir.

REVIEWS

Voksi® Ungbarnaskór

Af hverju ertu að leita?

Skráðu þig í vildarklúbbinn okkar!

Karfan þín