Lýsing
Nia er nýjasta ferðakerran frá Silver Cross og hentar einstaklega vel fyrir ferðalög um háloftin.
Nia er eina kerran sem samþykkt er af IATA til að taka með í farþegarými, bæði með sæti og burðarrúmi (þarf að kaupa sér)
Þessi ótrúlega fyrirferðalitla kerra pakkast vel saman og hægt er að geyma kerruna í farangurshólfum flugvéla. Kerra fyrir börn frá fæðingu til 4 ára, 22kg
Helstu kostir:
• Fyrirferðalítil og passar í farangurshólf flugvéla
• Kerran vegur aðeins 7,3kg
• Öryggisstöng sem auðvelt er að losa af kerrunni
• Stórt sæti sem leggst alveg niður með þægilegu sætisfóðri
• UPF50+ sólarvörn í skerm, sem er stækkanlegur
• 5 punkta belti
• Magnetic Genius™ belti
• Geymsluhólf undir kerrunni tekur 36 lítra
• Hægt er að smella ungbarnabílstólnum Glide Plus 360° á kerruna en hann er einn allra þróaðasti ungbarnabílstóll á markaðnum. Samþykktur samkvæmt R129/04 öryggisstaðli og prófaður umfram reglugerðir til að tryggja hámarksöryggi. (Kaupa þarf bílstólinn sér).
Geymsluvasi aftan á sætinu þar sem meðal annars er hægt að geyma litla hluti eins og síma og lykla
Auðvelt er að brjóta kerruna saman með annarri hendi og smella henni á öxlina með axlarólinni