Coast Tundra - Silver Cross
Silver Cross Coast Tundra
Með Silver Cross Coast fylgja bæði vagnstykki og kerrustykki en aðeins er hægt að nota annað í einu. Auðvelt er að breyta henni í systkinakerru með því að kaupa auka kerrustykki.
Sýningarmyndband um Coast hér!
VAGNSTYKKI
Vagnstykkið er sérhannað sem frábær svefnaðstaða fyrir litlu krílin. Innvolsið er fóðrað með bambus efni sem hrindir burt bakteríum og hjálpar til við að halda réttu hitastigi á barninu.
PLATINUM UNDIRVAGN
Coast undirvagninn er gerður úr hæsta flokks magnesíum áli sem er bæði sterkbyggt og létt. Dekkin eru úr mjög slitsterku efni og innihalda ekki loft svo ekki þarf að hugsa um að pumpa í dekkin né öðru viðhaldi á dekkjunum.
KERRUSTYKKI
Hægt er að snúa kerrustykkinu í báðar áttir, að foreldrinu eða frá. Það hefur þrjár hallastillingar og stillanlegan stuðning fyrir kálfann. Rúmgott sætið hentar börnum upp í 25kg, eða eins lengi og þau nota kerru.
SVUNTA OG SKERMUR Á VAGNSTYKKI
Skermurinn er með UPF50+ sólarvörn, góðu loftflæði og lítinn plast glugga. Einnig fylgir svunta fyrir vagnstykkið úr mjúku efni sem eykur hlýju og þægindi. Harðgert ytra efni ver barnið fyrir veðri og vindum.
Einnig smellpassar skermurinn á kerrustykkið.
REGNSLÁ - Regnslá sem passar á bæði vagnstykkið og kerrustykkið fylgja
FLUGNANET - Flugnanet sem passa vel á bæði vagnstykkið og kerrustykkið fylgja með og veita vernd gegn flugum og öðrum skorðdýrum
SÆTISHLÍF - Íburðarmikil og mjúk sætishlíf fylgir með, hún eykur þægindi og hlífir sætinu.
GLASAHALDARI - Glasahaldarann má festa bæði hægra eða vinstramegin.
Stærðir: Lengd 92-112 cm Hæð 91-107 cm
SAMANBROTIN: L94cm B60cm H34cm
ÞYNGD GRIND: 10kg
ÞYNGD VAGNSTYKKI: 2.9 kg
ÞYNGD KERRUSTYKKI: 2.6 kg
VAGNSTYKKI: Innra mál - 70 cm á lengd og breidd 32 cm
Hægt er að kaupa systkinapall fyrir Coast! Verð 15.900 kr.
Einnig hægt að fá skiptitösku í stíl við vagninn og kerrupoka.